Innskráningar kubbur

Auglýsing

steikin komin á ţrítugsaldur

14. júlí 2008 klukkan 11:29

collins orðin fullorðin kona - 20ára í dag og aldrei litið betur út



kristín þetta lag er tileinkað þér og þér einni


 
Elín Ýr Ólafsdóttir
1 athugasemd

diary of a mad white ghetto mama

12. júlí 2008 klukkan 15:50

já ghetto-mamma er sjálfsskipuð nafnsbót sem ég gengst undir þessa dagana, því það eina sem ég virðist gera þessa dagana er að vinna, vinna, elda, baka og versla í matinn, laumast í búsið þegar ég á mínútu aflögu.

En þó að mitt líf sé hálfsorglegt eru aðrir að skara fram úr, njóta lífsins og gera ótrúlega hluti. þetta er því tribute færsla tiil allra þeirra sem framkvæma mjög góða hluti.

- Rebekka Rut og landsliðið hennar eru á leið á HM

- Dagbjört æskuvinkona mín sem gengst líka við nafninu Djammbjört verður 21 þann 17.júlí og er að halda upp á það í kvöld, eins eru ROTH frændurnir að halda sameiginlega upp á tvítugsafmælin sín með pompi og prakt, veit ekki hvaða greifar þetta eru en það er víst fordrykkur matur og hljómsveit?? og ´til að loka afmælisbarna-innslaginu minni ég landsmenn góða á það að Collins er 20 ára á mán. muna að setja í reminder.

- Inga Rán stórvinkona mín fær hins vegar maníu-verðlaun-mánaðarins. Sem eru verðlaun sem voru sérhönnuð fyrir Ingu sem er heldur betur búin að standa sig með prýði í því að haga sér skringilega,becomming LOCO og gerast dagdrykkjukona í sumarfríinu.

lifið í friði og friðurinn mun lifa í lífi með frið sem friður kann að elska eins og lífið Elín Hrefna Ólafsd

Elín Ýr Ólafsdóttir
1 athugasemd

Ţađ ađ spara er eins og ađ fara í megrun!

08. júlí 2008 klukkan 21:42
já muriel síðan er enn einu sinni komin á fullt skrið. Bloggmeistarinn skammast sín vissulega fyrir það að vera alltaf að hætta í bransanum fyrir fullt og allt en líkt og Celine Dion láta aldrei verða af því, þetta er eflaust óþolandi fyrir mína yndislegu og heittrúðu lesendur og vonandi bregst ég ykkur ialdrei framar.

Margt hefur drifið á daga mína síðan ég hætti að blogga en það sem gerðist í gær eru gamlar fréttir í dag og þar af leiðandi ekki þess verðar að eyða pikki og striti í.

Mér finnst persónulegur sigur að hafa lifað af vinnudaginn í dag. Ég hef lítið sofið í vikunni enda að vinna í þremur störfum nótt sem dag, auk þess dró Rakel (verðandi atvinnumanneskja og vinkona mín ) mig upp á Esjuna í gær og mig sárverkjar í öllum vöðvum líkamans. Það er þó bót í máli að ég held að ég sé að fara að vinna Garpa gönguskó í vikulega Esjuhappdrættinu sem þeir sem komast á toppinnn geta tekið þátt í - vinnudagurinn var eins og áður sagði mjög svo strembinn en í lok dagsins fékk ég þó hina ávalt kærkomnu rúsínu sem er kennd við pylsuendann en það var enginn annar en Ólafur Sigurðsson fréttamaðurinn góðkunni sem gaf sig á tal við mig og gaf mér gott heilræði sem ég mun hafa með mér út í lífið hann sagði orðrétt
"það að spara er eins og að fara í megrun, þetta snýst um að vera aldre með pening né óhollan mat í kringum sig"

já krakkar mínir kveð ykkur að sinni og bendi á að þetta er fyrsta færslan þar sem nýja nafnið fær að njóta sín kv Elín Hrefna.
Elín Ýr Ólafsdóttir
1 athugasemd